Bjórbókin | Ogsvo... | RETRO.is | Hollt og Gott | Athvarfið mitt | Krak.dk | Skólinn minn víí.. | Ratebeer |
Freyr heiti ég og er stundum kallaður lingur. Ég fíla bjór og rauð axlarbönd og skammast mín ekkert fyrir það! Hér eru mínar sögur!





Stórfrétt :

SigFreyland er á leið á U2 31.júlí í Parken!

-----------------------
Check out my hometown!


-----------------------

Sunday, March 26, 2006

Blogg blogg! 

Já það er orðið ansi langt síðan síðast :) Og ég læt það verða aðeins lengur uns ég blogga aftur :) Maður hefur ekki tíma í svona dót.

Kv

Freysinn


Freysi at 12:33 PM

Sunday, March 27, 2005

Gleiðilega Páska! 

Jamms Páskahérinn kom í nótt og faldi páskaegg fyrir Mána. Hann skildi eftir margar vísbendingar sem Máni átti ekki í nokkrum vandræðum með. Nú situr hann hérna og er að drukkna í súkkulaði og salgæti af öðrum toga. Veður er gott og útlit fyrir góðan dag sem jafnframt er síðasti dagur Dodda og Lóu hér í Árósum. Á morgun skutla ég þeim til Köben!

Gott í bili.
www.bjorbok.net


Freysi at 10:30 AM

Friday, March 04, 2005

Hótel SigFreyland opnar aftur 

Þá er komið að því að Hótel SigFreyland opni aftur eftir vetrarmánuðina. Fyrstu gestir hótelsins verða Maggi, Ragna og Atli litli en þau eru væntanleg hingað eftir aðeins nokkrar klst. Munu þau gista hér eitthvað fram yfir helgina. Næstu gestir þar á eftir eru svo Doddi og Lóa (afi og amma) og munu þau koma í kringum þarnæstu helgi. Svo eiga línur eftir að skýrast betur en staðfestar komur eru svo Kjarri kúkur, Elín og Kolfinna, Valli frændi (í tengslum við U2) og vonandi Amma Sif.

Þannig var nú það!


Freysi at 1:50 PM

Thursday, February 24, 2005

Kroppaskrúbb og tannburstun! 

Jammsí er að spá í að blogga smá ég er nefnilega kominn í svo miklu betra skap eða svoleiðis já. Jújú sökum yfirvofandi peningaskorts næsta sumar og næstu önn þá hef ég ákveðið að læra að verða aðstoðar hjúkka (hjúkrunarfræðingur eins og Ólína vill hafa það) eða sygeplejevikar sem það heitir á dönskunni. Ég kalla þetta nú skeinitæknir en það er annað mál. Þessi fræði læri ég hér í bæ á svokölluðum FADL kúrsum og það tekur rétt rúman mánuð og ég mæti allar næstu helgar bæði laugardag og sunnudag frá kl 8 til 16:15 auk þess sem ég er stundum á kvöldin á virkum dögum. 'UFF já ég þetta er ansi mikið :( Ég hef nú þegar mætt 3. og hef lært allt um hvernig á að drösla fólki í og úr rúmi og snúa þeim á alla kanta. Á næstunni þurfum við svo að æfa okkur í þvo hvort öðru hátt og lágt, allt fyrir utan kønsorganer. Svo munum við mata hvort annað sem og bursta í hvort öðru skoltinn. Já þessi kúrs er afar fjölbreytilegur og spennandi úff. Svo er rúsínan í pylsunni að eftir kúrsinn get ég farið að vinna og halað inn smá aur. Skeina skrúbba og skafa :D

Jæja farinn að horfa á einhvern saur í imbanum!


Freysi at 9:49 PM

Tuesday, February 22, 2005

Litli súri strákurinn 

Ég er enn að jafna mig eftir þetta U2 FÍASKÓ. Blogga þegar ég jafna mig....vonum að það taki ekki of langan tíma.


Freysi at 10:45 PM

Sunday, February 06, 2005

Afturkreistir demantar! 

Spennan er gífurleg.....ég held varla vatni hérna aaaaahhh! Já í fyrramálið kl 10 hefst salan á U2 miðunum og það er allt útlit fyrir mikla baráttu. Miðarnir eiga eftir að rjúka út og ég skal hundur heita ef ég verð ekki einn af þeim sem hreppir hnossið. Já maginn er í steik og allt útlit fyrir að maður kúki demöntum næstu klukkutíma. Planið er hins vegar nokkuð gott samt.....frúin verður
í bænum og bíður eftir að ein af búðunum opni sem selur miða. Á meðan verð ég heima með tvær vélar á netinu að reyna eins og mófó að ná sambó við billetnet en að auki mun ég svo hringja inn 3. hverja sekúndu á meðan á þessu stendur. VEI ÞEIM SEM HRINGIR Í MIG Í FYRRAMÁLIÐ EFTIR KL 10! Sem sagt operation VERTICO, ég verð í "beisinu" code name BIG MAMA á meðan Sigrún "Litle Duck" verður úti í feltinu. FUCK ÞETTA VERÐUR AÐ GANGA!!!!!!!!!!!!


Freysi at 9:21 PM

Thursday, February 03, 2005

Dauðar heilasellur lífgaðar við! 

Þetta var öðruvísi dagur í dag. Ég fór í minn fyrsta dæmatíma í Biofysik eða eins og ég kalla það eðlisfræðin að handan. Heimareikningurinn í gær gekk frekar brösulega fyrir sig og vonaðist ég því til að fá útskýringar í þessum dæmatíma en svo varð aldeilis ekki raunin. Gaurinn sem stóð fyrir tímanum var voðalega klár, það vantaði ekki en hann þjösnaðist bara í gegnum dæmin á ofur hraða og maður náði ekki nokkru sem var að gerast uppi á töflunni. Gaurinn sem heitir Mouhammad nauðgaði aumingja krítinni og allt í einu voru komin gröf og jöfnur með svo mörgum breytum að manni svimaði léttilega. Djöfull er langt síðan maður reiknaði eittvað yfir höfuð. Já það voru ansi margar heilasellur sem voru vaktar upp við vondan draum í dag. Sellurnar sem búnar eru að vera á jamminu og hafa það allt of huggulegt síðustu 10 árin. Reyndar var þetta samt nokkuð hressandi lífsreynsla verð ég að segja, ég er einhvern vegin miklu opnari í dag.

Jammsí, ég fór svo heim að reyna finna út úr þessu en sofnaði yfir bókunum (Össi ég slefaði ekkert á bækurnar þínar samt - ef þú ert að lesa þetta). Síðan skellti ég mér á karateæfingu til að fá útrás fyrir gremju minni yfir því að tölvan okkar er helsetin af alls kyns ormum og veirum eða SPYWARE eins og það heitir á svona nördísku. Þessir djöflar eru búnir að kosta mig 5 daga vinnu og enn er ég ekki laus við þetta &##€@€###@$%$% SIDEFIND og ISTbar helvíti! Anyhow ég mætti á æfingu og komst að því að Seinsei (kennarinn) væri veikur. Þar sem ég var með hæstu gráðuna á svæðinu var leitað til mín og ég beðinn um að leiða líðinn til sannleika um Karate og tengd málefni. Þetta gekk bara nokkuð vel og voðalega gaman að pína liðið með smá armbeygjum og stjörnuhoppum ofl HEHEH.

Jájá dagurinn var í heild sinni bara ágætu, ekki annað hægt að segja. Á morgun hefst svo baráttan við bækurnar og ormaskrattana á nýjan leik. LEITER!


Freysi at 11:29 PM

Líttu við á báknið mitt sem fjallar um ástina í lífi mínu


Kíktu á myndirnar!

"USA is the cancer of our world, it spreads rapidly and doesn't stop until the whole planet is infected. The end result of course is the death of the host, our Earth. There are no drugs available and therapy is just in its early stages, making USA a serious life threatening disease that must be dealt with before it's too late!"

- Freyr 2003

freysalingur@hotmail.comfreysalingur@hotmail.comfreysalingur@hotmail.com